Bangsinn Blær
Útdráttur
- Að móta jákvæðan skólabrag og viðhalda honum.
- Að samfélag barnanna einkennist af gagnkvæmu umburðarlyndi og virðingu.
- Að þróa getu barna til þess að sýna hverju öðru umhyggju og að styðja félaga sína og verja.
- Að efni og þau gildi sem verkefnið byggir á séu eðlilegur hluti af daglegu lífi og skólastarfi.
- Að koma í veg fyrir einelti í leiksólum og grunnskólum, með því að starf skólanna, áætlanir og viðhorf tryggi börnum umhverfi þar sem einelti nær ekki að þrífast.
- Að þróa nýjar aðferðir og verkfæri til forvarna fyrir leikskóla og yngstu bekki grunnskóla.
- Að stuðla að rannsóknum á einelti
- Forvarnarverkefni gegn einelti
Grunngildin fjögur:
- Umburðarlyndi: Að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og koma fram við alla af virðingu.
- Virðing: Að viðurkenna og taka tillit til allra barnanna í hópnum, að vera öllum góður félagi og virða mismunandi hátterni annarra.
- Umhyggja: Að sýna öllum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi. Að hafa skilning á stöðu annarra.
- Hugrekki: Að þora að láta til sína heyra og geta sett sér mörk. Að vera hugrakkur og góður félagi sem bregst við óréttlæti